Persónuvernd

Hvernig farið er með upplýsingar sem sendar eru í gegnum fyrirspurnarform á daman.is.

Ábyrgðaraðili

DAMAN, kennitala 680513-0230
info@daman.is · 780 4144

Hvaða upplýsingar

Þegar þú sendir fyrirspurn eru skráð: heiti fyrirtækis, nafn tengiliðar, netfang, sími ef hann er gefinn upp, tegund starfsemi, áhugasvið og skilaboð.

Tilgangur

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni og fylgja henni eftir. Fyrirspurnin berst DAMAN í tölvupósti í gegnum póstþjónustuna SMTP2GO.

Lagagrundvöllur

Vinnslan byggist á samþykki þínu og á því að verða við beiðni þinni áður en til mögulegra viðskipta kemur.

Varðveisla

Fyrirspurnum er eytt þegar þeim hefur verið svarað og samskiptum lokið, og ekki síðar en 12 mánuðum eftir að þær bárust, nema lög krefjist lengri varðveislu.

Vefgreining og vafrakökur

Við notum vefgreiningu frá stats.is til að fá samantekna tölfræði um heimsóknir, til dæmis hvaða síður eru skoðaðar. Hún er ekki notuð til markaðssetningar eða auglýsinga. Letur eru hýst á vefnum sjálfum.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

Fyrirspurnir um persónuvernd: info@daman.is.